Skrifað þann 13 maí, 2008 af verdandifit
Vika eitt- dagur eitt.
Jæja, hér með er ég mætt aftur og komin með nóg af þessu rugli sem er búið að vera á mér síðustu mánuði. Þetta er búið að vera mjög gaman en það er komið að því að ég taki ábyrgð á þyngdinni. Ætla svo sannarlega að standa mig í þetta skiptið, lenti í því í vikunni að sá sem ég var búin að deita í nokkrar vikur ákvað að hætta við mig. Hugurinn í manni er svo klikkaður að ég get ekki séð aðra ástæðu en að ég hafi hreinlega bara verið of feit. Ég veit betur, en ég er samt ákveðin í að standa mig og þetta ýtti við mér.
Ég er 91 kíló gott fólk. Það er alltof mikið fyrir stelpu sem er 1.70 á hæð.
Ég ætla að stefna á 65 kg. Mér finnst það rökrétt því það er eðlileg þyngd miðað við hæð og það er þyngd sem ég ætti að geta haldið. Ég hef engan áhuga á því að verða einhver spýta heldur bara verða fitt og án skvabbs. Ég ætla að taka eitt kg niður á við í einu, ekkert rugl í þetta skiptið. Stefna á u.þ.b. 1 kg á viku til að byrja með. Ég er búin að vera í sömu þyngd í 4 ár, það er rugl að ætlast svo til þess að þetta fari af á fáeinum vikum.
Ég ætla að hafa sama hátt á og áður, þ.e. hafa einn frídag í viku.
Endilega látið mig vita ef þið nennið að kíkja hér inn ennþá, ég er amk mætt og ekki að fara neitt.
Flokkað undir: Uncategorized | 3 ummæli »
Skrifað þann 19 mars, 2008 af verdandifit
Alkahólistinn og skyndibitadrottningin segir hæ!
Ég held mér ca. í 88 kg sem er nú ekkert svo slæmt, en mig langar svo mikið að komast neðar. Veit eiginlega ekki hvað skal til bragðs að taka varðandi þetta útstáelsi á mér sem þó hefur verið yfirþyrmandi skemmtilegt. Það er svosem ekki það sem skemmir, heldur þynnkan daginn eftir og sukkið sem yfirleitt verður að fylgja henni. Ég fór þó í ræktina í dag og tók vel á því og ætla mér að vera nokkuð dugleg á næstunni.
Hvernig gengur ykkur?
Flokkað undir: Uncategorized | 2 ummæli »
Skrifað þann 4 mars, 2008 af verdandifit
Ég er búin að vera í ruglinu undanfarnar vikur. Þá meina ég ekki sukk skyndibitanammirugli heldur er ég búin að drekka áfengi allar helgar síðan ég veit ekki hvenær. Ég held mér þó alveg undir 90 kg, en þetta gengur náttúrulega ekki alveg svona. Markmiðum mínum hefur ekki verið náð, og nú set ég amk smá stopp á þetta djamm rugl. Mér samt líður gífurlega vel með mig núna og hlakka til að tæta enn fleiri kíló í burtu.
Flokkað undir: Uncategorized | 4 ummæli »
Skrifað þann 15 febrúar, 2008 af verdandifit
Haldiði ekki bara að 10 kg markmiðinu sé náð! *fagnaðaróp og klapp*
Brooooooooooooooooooooooooooos
Flokkað undir: Uncategorized | 10 ummæli »
Skrifað þann 12 febrúar, 2008 af verdandifit
Ég er að elska þennan nýja lífsstíl. Og það sem meira er, ég er farin að elska sjálfa mig alveg þokkalega aftur! Reyndar eru helgarnar smá off, því ég hef verið að stunda áfengissumbl meira en góðu hófi gegnir síðustu vikur… Úbbs.
Ég er farin að sjá mikinn árangur, mjög mikinn! Kjóllinn sem ég útskrifaðist í fyrir 1,5 ári er orðinn allt of stór og föt sem ég var hætt að vera í smellpassa. Nú eru rétt 22 kg í markmiðið og mér finnst það bara viðráðanlegt! Ætla að vera komin niður í þá þyngd í sumar, og það er ekkert sem getur stöðvað mig!
Flokkað undir: Uncategorized | 3 ummæli »
Skrifað þann 7 febrúar, 2008 af verdandifit
Þá er það orðið formlegt að ég er 7 kg léttari en ég var um jólin, er 88 kg í dag. Það munar nú aldeilis um minna. Ég verð samt að viðurkenna að ég er bæði glöð og pínu kvíðin. Í mörg mörg ár hef ég sagt sjálfri mér að ég sé inn við beinið svona og hinsegin, það eina sem er að hamla mér séu aukakílóin. Hvað ef það er svo ekki rétt. Ég veit að þetta eru frekar fáránlegar pælingar, en í of mörg ár hef ég borið skjöld, skjöld sem nú á að hverfa eitthvert langt í burtu. Þá stend ég eftir. Verður þessi “ég” jafn dásamleg og ég hef látið í veðri vaka?
Fólk er byrjað að taka meira eftir því að ég hafi verið dugleg og ég hef fengið komment á borð við: “Ertu að grennast?” eða “Mikið rosalega líturu vel út!”. Það er aldrei leiðinlegt! Ég er líka svo hamingjusöm með allt. Svo hamingjusöm reyndar að stundum stend ég mig að því að brosa eins og mongólíti út í loftið. Ég hlakka til alls núna. Ég get ekki beðið eftir að snjórinn fari, að það hlýni í veðri, sumrinu, öllum vinkonuhittingunum og þessháttar. Lífið er svo sannarlega mikils virði.
Flokkað undir: Uncategorized | 6 ummæli »
Skrifað þann 5 febrúar, 2008 af verdandifit
til að ná niður í 65 kg. Ég hlakka ekkert smá til að tæta þessi kíló af mér á næstu mánuðum. Loksins finnst mér þetta gerlegt.
Flokkað undir: Uncategorized | 3 ummæli »
Skrifað þann 4 febrúar, 2008 af verdandifit
Borðaði enga bollu í dag! Fékk næg tækifæri til þess en mig bara hreinlega langaði ekki í. Ég sá 88,4 á vigtinni í morgun og finnst ég öll vera að skána í framan. Er virkilega ánægð með mig núna og það kemur ekki til greina að fara aftur til baka.
Flokkað undir: Uncategorized | 2 ummæli »
Skrifað þann 1 febrúar, 2008 af verdandifit
89,8 sagði mín ástkæra vigt í morgun. Er ekkert smá hamingjusöm með það! Hef verið að standa mig nokkuð vel, þó aðeins með smá beygjum hér og þar. En nú eru beygjurnar á undanhaldi þar sem það er mjög merkur atburður í sumar sem skiptir mig mjög miklu máli að líta vel út á. Mun hitta fólk sem ég hef ekki séð í 4 ár, eða jafnvel aldrei nokkurntímann séð, og ég ætla amk að vera 70 kg þegar það gerist. Það verður svolítið strembið, en alveg gerlegt. Ætla að hreyfa mig meira þangað til, lengja brennsluna og fara oftar að lyfta og takmarka kaloríur svolítið mikið, þó með einum svindldegi í viku svo ég missi ekki algjörlega móðinn. Þegar maður hefur eitthvað að stefna að verður allt svo mikið auðveldara.
Flokkað undir: Uncategorized | 3 ummæli »
Skrifað þann 14 janúar, 2008 af verdandifit
Búin að fá hrós og komment um það hvort það geti verið að ég sé að grennast! Vííí það þarf ekki lengri tíma en þetta til að eitthvað fari að gerast. Ég er í einhverjum pirringsgír, langar bara að losa mig við þetta allt í einum grænum. En maður verður að halda einbeitingunni og gera þetta á réttan hátt. En líðanin… maður lifandi… það er eins og 1000 kg hafi verið tekin í burtu af sálinni um leið og þetta fór að ganga eitthvað hjá mér. Það er æðislegt.
Flokkað undir: Uncategorized | 8 ummæli »